Þú hefur fengið að gjöf heilan bráðabirgðaskóla fyrir 40 börn. UNICEF mun nú sjá til þess að gjöfin berist til barna sem þurfa á henni að halda. Við köllum gjöfina „skóla í kassa“ því í kassanum er að finna öll þau námsgögn sem eru nauðsynleg svo börn geti haldið skólagöngu sinni áfram við neyðaraðstæður.
Skóli í kassa
27.694 kr.
„Skóli í kassa“ inniheldur allt sem þarf til að börn geti haldið skólagöngu sinni áfram við neyðaraðstæður.
Málmboxið er fullt af námsgögnum: Stílabókum, blýöntum, strokleðrum, litum, skærum og öðru. Í því eru einnig sem dæmi upptrekkjanlegt útvarp og gráðubogi. Lokið á boxinu má síðan mála með krítum sem eru í kassanum og þar með eru börnin komin með krítartöflu.
Innihald:
- Bráðabirgðaskóli með námsgögnum fyrir 40 börn.
Textinn sem birtist á gjafabréfinu:
Flokkar Allar gjafir, Menntun



