Þú hefur fengið að gjöf 5.000 fisléttar vatnshreinsitöflur sem hreinsa 20.000 lítra af drykkjarvatni. UNICEF mun nú sjá til þess að gjöfin berist til barna sem þurfa á henni að halda. Gjöfin, sem gefin var í þínu nafni, tryggir börnum hreint og öruggt drykkjarvatn og er því ómetanleg.
Vatnshreinsitöflur – 5.000 stk.
2.903 kr.
Þú getur allt, við vitum það, líka tappað 20 þúsund lítrum af hreinu drykkjarvatni á brúsa og sent út í heim. En þú þarft þess ekki.
Eina sem þú þarft eru 5.000 litlar og léttar vatnshreinsitöflur og á örskotsstund breytir þú óhreinu og sýktu vatni í drykkjarhæft vatn fyrir börn í neyð.
Innihald:
- 5.000 vatnshreinsitöflur sem hreinsa 20.000 lítra af drykkjarvatni.
Textinn sem birtist á gjafabréfinu:
Flokkar Allar gjafir, Öryggi



