Til hamingju! Þú fékkst Hjálparegg sem er fullt af öðru og meiru en súkkulaði og sætindum. Hjálpareggið inniheldur 50 poka af vítamínbættu jarðhnetumauki fyrir börn sem þjást af vannæringu. UNICEF mun núna sjá til þess að gjöfin berist til barna sem þurfa á henni að halda.
Hjálpareggið
2.800 kr.
Það eru engar gagnslausar súkkulaðikalóríur í Hjálparegginu. Aðeins nauðsynleg næringarefni fyrir börn í neyð sem þjást af vannæringu. Þetta er eina ofátið sem mun gera okkur gott um páskana.
Hjálpareggið inniheldur vítamínbætt jarðhnetumauk sem gerir kraftaverk fyrir börn og í flestum tilfellum þurfa vannærð börn aðeins þrá slíka poka á dag í fáeinar vikur til að ná fullum bata.
Innihald:
- 50 pokar af vítamínbættu jarðhnetumauki
Textinn sem birtist á gjafabréfinu:
Flokkar Allar gjafir, Pakkar




