Þú hefur fengið einstaka gjöf fyrir einstaka manneskju. Hún er táknræn gjöf og jafngildir 50 skammta af vítamínbættu jarðhnetumauki ásamt fjórum hlýum teppum. 5.000 vatnshreinsitöflur til að gera óhreint vatn drykkjarhæft og síðast en ekki síst 50 skammta af bóluefni gegn mænusótt. Þessi gjöf gerir heiminn betri – eins og þú!

Gefandi jólagjöf

9.645 kr.

Er til betri leið en að sýna væntumþykju en með því að gefa hlýju, næringu og möguleika á betri framtíð?

Pakkinn innheldur vítamínbætt jarðhnetumauk sem gerir kraftaverk fyrir vannærð börn en maukið hefur í  raun valdið byltingu í meðferð við vannæringu. Í flestum tilfellum þurfa börn einungis þrjá pakka af vítamínbættu jarðhnetumauki á dag í fáeinar vikur til að ná fullum bata.

Fimm þúsund fisléttar og byltingarkenndar vatnshreinsitöflur sem á örskotsstund breyta óhreinu og sýktu vatni í 25 þúsund lítra af drykkjarhæfu vatni.

Teppi er gjöf sem veitir börnum skjól þegar hamfarir og stríð neyða þau og fjölskyldur þeirra til að flýja að heiman. Í þessum pakka eru fjögur hlý teppi sem send verða þar sem neyð ríkir og skortur er á skjóli og hlýjum fatnaði.

100 skammta af bóluefni sem verndar börn gegn lífshættulegum sjúkdómi, mænusótt. Við erum nálægt því markmiði að útrýma mænusótt alfarið úr heiminum. Með þessari gjöf tekur þú þátt í baráttunni.

Veldu mynd fyrir kortið

  • Drag or upload a file

    Suggested size: 800x800

    Your image

Hvernig viltu fá gjafabréfið afhent?

Verð samtals:
- +

Textinn sem birtist á gjafabréfinu:

Þú gætir haft áhuga á...

Scroll to Top