Þú hefur fengið að gjöf táknrænan blómvönd sem bjargar lífi barna. Engar 18 rósir heldur 75 skammta af vítamínbættu jarðhnetumauki fyrir vannærð börn sem UNICEF mun sjá til að berist til barna sem á þurfa að halda. Maukið gerir kraftaverk og í flestum tilfellum þurfa vannærð börn aðeins þrjá pakka á dag í fáeinar vikur til að ná fullum bata.
Blómvöndur sem bjargar lífi barna
3.675 kr.
„Átján rauðar rósir, þær fölna og falla um síð,“ segir í laginu, en þetta er enginn venjulegur blómvöndur og með honum fær enginn að fölna né falla.
Þessi blómvöndur bjargar lífum. Hann jafngildir 75 pakka af vítamínbættu jarðhnetumauki fyrir vannærð börn.
Þrír pakkar af þessu undramauki á dag í nokkrar vikur og alvarlega vannærð börn geta náð fullum bata.
Textinn sem birtist á gjafabréfinu:
Flokkur Allar gjafir



