Þú hefur fengið táknræna gjöf með 50 skömmtum af bóluefni gegn mænusótt, 50 skömmtum gegn mislingum og 100 skömmtum af bóluefni gegn barnaveiki, stífkrampa og kíghósta. Með þessari táknrænu gjöf leggur þú þitt af mörkum við að vernda börn um allan heim gegn sjúkdómum. UNICEF mun nú sjá til þess að gjöfin berist til barna sem þurfa á henni að halda.
Bólusetningapakkinn
9.035 kr.
Það hljómar kannski eins og versta martröð í eyrum einhverra að fá röð af sprautum að gjöf. En hér eru engar fóbíur, bara frábær gjöf og bólusetningar sem bjarga lífum!
Þessi táknræna gjöf tryggir börnum vernd gegn mislingum, mænusótt, barnaveiki, stífkrampa og kíghósta. Bólusetningar koma í veg fyrir alvarlega sjúkdóma og eru okkar besta vörn gegn farsóttum.
Leggðu þitt af mörkum við að vernda börn um allan heim og samfélög þeirra.



