Þessi gjöf útvegar sóttvarnarbúnað fyrir heilbrigðisstarfsfólk um allan heim sem berst við útbreiðslu smitsjúkdóma. Þessi pakki inniheldur verndargalla, andlitsgrímur, og hanska sem tryggja öryggi framvarðasveitar heilbrigðisstarfsfólks. UNICEF mun núna sjá til þess að gjöfin berist til þeirra svæða þar sem hennar er þörf.
Verndarpakki fyrir heilbrigðisstarfsfólk
17.052 kr.
Áríðandi er að heilbrigðisstarfsfólk geti sinnt sínum mikilvægu störfum þegar mikið liggur við. Þessi pakki tryggir öryggi framvarðarsveitar heilbrigðisstarfsfólks í baráttu við mannskæða sjúkdóma eða útbreiddar sóttir.
Þetta hetjur eru með líf og velferð barna í höndunum. Tryggjum öryggi þeirra.
Innihald:
- 60 andlitsgrímur sem sporna gegn öndunarfærasmiti.
- 90 hanskar sem notaðir eru á umönnunarsvæðum.
- Sóttvarnarklæðnaður fyrir 3 heilbrigðisstarfsmenn.
Textinn sem birtist á gjafabréfinu:
Flokkar Allar gjafir, Öryggi, Pakkar




