Þú hefur fengið Ofurhetjupakkann að gjöf. Ofurhetjupakkinn er kjörinn fyrir ofurhetjur á öllum aldri sem vilja bæta líf varnarlausra barna og hjálpa til við að vernda þau gegn lífshættulegum sjúkdómum. UNICEF mun nú sjá til þess að gjöfin þín berist til barna sem þurfa á henni að halda.
Takk fyrir að vera ofurhetja!
Ofurhetjupakkinn
9.985 kr.
Það ganga ekki allar ofurhetjur með skikkjur.
Ofurhetjupakkinn er kjörinn fyrir ofurhetjur á öllum aldri sem vilja bæta líf varnarlausra barna og hjálpa til við að vernda þau gegn lífshættulegum sjúkdómum.
Ofurkraftarnir felast í þessum bóluefnum og jarðhnetumauki, en með þá að vopni getur Ofurhetjan pakkað saman öllum sínum helstu erkióvinum, mænusótt, mislingum, barnaveiki, stífkrampa, kíghósta og vannæringu. Vertu hetjan sem öll börn þurfa og eiga skilið.




