Þið hafið fengið táknræna gjöf með vatnshreinsitöflum sem hreinsar drykkjarvatn og námsgögn handa börnum. UNICEF mun nú sjá til þess að gjöfin berist til barna sem þurfa á henni að halda. Gjöfin er gefin í nafni ástarinnar og er lífsbjörg fyrir börn.
Brúðkaupsgjöfin
10.531 kr.
Kæru brúðhjón. Ástin er eins og vatnið. Hvort tveggja ætti að vera hreint og laust við banvæna sjúkdóma og almenn óhreinindi.
Ástin ykkar er hrein en allt of mörg börn hafa ekki aðgang að hreinu vatni sem gerir þau berskjölduð fyrir banvænum sjúkdómum. Þessi táknræna gjöf getur breytt skítugu vatni í drykkjarhæft vatn fyrir þessi börn.
En ástin er líka eilífur lærdómur svo gjöfin inniheldur einnig nauðsynleg námsgögn handa börnum.



