Þið hafið fengið táknræna gjöf sem jafngildir 5.000 vatnshreinsitöflum sem hreinsa 25.000 lítra af drykkjarvatni og námsgögn fyrir fjögur börn. UNICEF mun nú sjá til þess að gjöfin berist til barna sem þurfa á henni að halda. Gjöfin er gefin í nafni ástarinnar og er lífsbjörg fyrir börn.
Hjónabandssælan
6.266 kr.
Kæru hjón. Ástin er eins og vatnið. Stundum gárar það en hvort tveggja ætti að vera hreint og laust við sjúkdóma og almenn óhreinindi.
Ólíkt ástinni ykkar þá er drykkjarvatn of margra barna ekki hreint. Það gerir þau berskjölduð fyrir banvænum sjúkdómum. Þessi gjöf getur breytt 25 þúsund lítrum af skítugu vatni í drykkjarhæft vatn fyrir þessi börn.
En ástin er líka eilífur lærdómur svo gjöfin inniheldur einnig nauðsynleg námsgögn handa fjórum börnum.
Textinn sem birtist á gjafabréfinu:
Flokkar Allar gjafir, Brúðkaup, Pakkar




