Þú hefur fengið að gjöf 25 fjölnota dömubindi. Víða er skömm í kringum blæðingar og stúlkur hafa ekki aðgang að tíðavörum. Það heftir skólagöngu þeirra og hindrar þátttöku þeirra í samfélaginu. Það á engin stúlka að þurfa að kvíða því að fara á túr. Þessi gjöf stuðlar að jafnrétti og frelsi kvenna og er auk þess umhverfisvæn.
Umhverfisvæn dömubindi
2.935 kr.
Þessi fjölnota dömubindi eru magnaðri en þig grunar.
Dömubindi eru jafnréttismál. Í mörgum löndum er skömm í kringum blæðingar og stúlkur hafa ekki aðgang að tíðavörum. Það heftir skólagöngu þeirra á meðan á tíðum stendur og kemur í veg fyrir þátttöku þeirra í samfélaginu.
Það er réttur allra stúlkna sem fara á blæðingar að hafa aðgang að tíðavörum og engin stúlka á að þurfa að kvíða því að fara á túr.
Svo er ekki verra að þessi dömubindi eru umhverfisvæn.
Innihald:
- 25 fjölnota umhverfisvæn dömubindi og poki til geymslu



