Þú hefur fengið Krakkapakkann í táknræna gjöf, sem inniheldur á fimmta tug mikilvægra þroska- og kennsluleikfanga fyrir allt að 50 börn í einu á aldrinum 0-6 ára. Gjöfin gefur börnum í erfiðum aðstæðum tækifæri til þroska og færni svo þau njóti barnæskunnar. UNICEF mun sjá til þess að gjöfin berist til barna sem þurfa á henni að halda.
Krakkapakkinn
22.890 kr.
Krakkapakkinn okkar hefur verið uppfærður og er nú barmafullur af nauðsynlegum og skemmtilegum þroska- og kennsluleikföngum fyrir allt að 50 börn í einu á aldrinum 0-6 ára.
Á fimmta tug skemmtilegra þroskaleikfanga er að finna í kassanum, til notkunar innan- og utanhúss, og eiga þau það allt sammerkt að ýta undir þroska og félagsfærni barna. Auk skemmtilegra leikfanga er einnig að finna í pakkanum fræðsluefni fyrir leiðbeinendur sem og hreinlætisvörur til að auka skilnin gbarna á mikilvægi hreinlætis í nærumhverfi þeirra.
Krakkapakkinn inniheldur allt sem þarf til að tryggja nauðsynlegan þroska og færni ungra barna í erfiðum aðstæðum. Tryggðu að börn um allan heim fái að njóta barnæskunnar.



