Þú hefur fengið gjöf sem jafngildir vetrarfatnaði fyrir tvö börn og fjögur teppi. Gjöfin þín mun hlýja börnum í flóttamannabúðum en þar getur orðið mjög kalt á veturna, sérstaklega fyrir börn sem búa í tjöldum. UNICEF mun nú sjá til þess að gjöfin berist til barna sem þurfa á henni að halda.
Hlýr pakki
8.621 kr.
Er til betri leið til að sýna hlýju og væntumþykju en að gefa vetrarföt og umvefjandi teppi?
Við Íslendingar þekkjum vetrarkulda manna best og hvað það er mikilvægt að eiga gott skjól.
Í mörgum flóttamannabúðum getur orðið mjög kalt á veturna, sérstaklega fyrir þau börn sem búa í tjöldum.
Hlýi pakkinn yljar ekki aðeins börnum í neyð heldur einnig þínu kærasta fólki um hjartarætur.
Textinn sem birtist á gjafabréfinu:
Flokkar Allar gjafir, Hlýja, Mikil þörf, Pakkar



