Þú hefur fengið táknræna gjöf sem jafngildir 100 skömmtum af vítamínbættu jarðhnetumauki fyrir vannærð börn. UNICEF mun nú sjá til þess að gjöfin berist til barna sem þurfa á henni að halda. Jarðhnetumaukið þitt gerir kraftaverk fyrir vannærð börn því með einungis þremur skömmtum á dag í fáeinar vikur geta þau náð fullum bata.
Jarðhnetumauk – 100 pokar
4.892 kr.
Vítamínbætt jarðhnetumauk gerir kraftaverk fyrir vannærð börn. Það er tilbúið til neyslu beint úr pakkanum og inniheldur öll nauðsynleg næringarefni, vítamín og steinefni.
Í flestum tilfellum þurfa börn einungis þrjá poka af vítamínbættu jarðhnetumauki á dag í fáeinar vikur til að ná fullum bata.
Textinn sem birtist á gjafabréfinu:
Flokkar Allar gjafir, Næring, Mikil þörf



