Fyrirtækjagjafir
Ertu að leita að gjöf fyrir starfsfólk eða samstarfsaðila?
Fyrirtæki nýta Sannar gjafir í sífellt auknum mæli til að gleðja starfsfólk sitt og samstarfsaðila. Sannar gjafir eru skemmtileg leið til að sýna þakklæti og hafa um leið jákvæð áhrif á líf barna um allan heim.
Fyrirtæki geta ýmist keypt gjafabréf hér á heimasíðu Sannra gjafa, jólakort eða sérsniðið gjöfina í samstarfi við okkur. Hægt er að velja um margskonar hjálpargögn í öllum verðflokkum. Sumir kjósa einnig að gefa Sanna gjöf með öðrum gjöfum til starfsfólks.
Til að panta eða fá frekari upplýsingar má hafa samband við Katrínu, katrins@unicef.is / 552-6300.
Sérsniðnar gjafir
Við getum hrint góðum hugmyndum í framkvæmd og aðlagað gjafir
að verðhugmyndum og fjölda.
Hægt er að nota útlitið á Sönnum gjöfum eða sérhanna sérstakar gjafir
fyrir vinnustaðinn þinn.
Við höfum unnið með fyrirtækjum að fjölbreyttum lausnum.
Endilega hafðu samband við Stefán fyrir frekari upplýsingar
katrins@unicef.is / 552-6300.
Sýnishorn
Dæmi um sérsniðna gjöf
Í þessum dæmispakka er hlýtt teppi fyrir barn og 20 skammtar af bóluefni gegn mænusótt.
Þessi hjálpargögn komin á vettvang kosta ekki nema 1.077 kr.
Jólakort
Íslensku jólasveinarnir senda fallega jólakveðju. Hver og einn jólasveinn kemur til byggða með mismunandi gjafir til barna sem þurfa á að halda!
Hvert kort kostar 1.500 kr og hægt er að skrifa í þau persónulega kveðju.
1,5% skattaafsláttur fyrirtækja
Athugið að Sannar gjafir er hægt að telja til stuðnings til góðgerðarmála og er því hægt að nýta til skattaafsláttar upp að 1,5% af árlegum tekjum fyrirtækis.