Algengar

Spurningar

Sjálfsafgreiðsla með greiðslukortum inn á www.sannargjafir.is er opin alla daga. 

Hægt er að fá útprentuð gjafabréf send með Póstinum gegn gjaldi. Þú getur alltaf fengið gjafabréfin send í tölvupósti til að prenta út heima eða áframsenda rafrænt á viðtakanda. Einnig er hægt að koma við á skrifstofunni okkar á Strandgötu 75, 220 Hafnafirði.

Þarfnist þú aðstoðar vinsamlegast hafðu samband með tölvupósti á sannargjafir@unicef.is eða í síma 552-6300 á milli 13:00-16:00, mánudag til fimmtudags

Takk kærlega fyrir kaupa Sannar gjafir.

Sannar gjafir UNICEF er táknrænar gjafir sem styrkja hjálparstarf UNICEF fyrir bágstödd börn. Gjafirnar sem þú kaupir í vefverslun UNICEF á Íslandi sýna hvað hægt er að útvega fyrir virði gjafarinnar. Sannar gjafir UNICEF eru keyptar í nafni þess sem þig langar að gleðja. Þú færð fallegt gjafabréf með ljósmynd og lýsingu á gjöfinni og lætur viðkomandi fá bréfið. Núna getur þú meira að segja sett inn þína eigin persónulegu mynd til að gleðja viðtakandann. Framlagið fer í að hjálpa börnum út um allan heim. Sannar gjafir sem eru neyðaraðstoð fara í neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi fyrir það svæði sem tiltekið er í gjöfinni. Þú getur valið um margs konar táknrænar gjafir í öllum verðflokkum. Öll eiga þau eitt sameiginlegt: Að bæta og bjarga lífi barna um víða veröld.

Hér munum við innan tíðar birta kennslumyndband fyrir nýja heimasíðu Sannra gjafa. Ef við getum aðstoðað þig, hafðu þá samband í síma 552 6300.

Gjafakort skilar sér ekki. 

Ef að þú hefur þegar keypt Sanna gjöf og gjafakortið skilar sér ekki, þá er ekkert mál að aðstoða þig. Hafðu samband við okkur símleiðis eða með tölvupósti á sannargjafir@unicef.is og við svörum eins fljótt og auðið er. Athugaðu að gjafabréf og staðfestingarpóstar fara stundum í ruslpóst eða „promotions“ í pósthólfum. 

Opið hjá okkur á milli 13:00-16:00, mánudaga til fimmtudags og hægt að ná í okkur í síma 552-6300 eða með því að senda póst á sannargjafir@unicef.is. 

Okkur þykir afar leiðinlegt þegar gjafakortin skila sér ekki, sem betur fer gerist það sjaldan. Við reynum því að bregðast við beiðni þinni eins fljótt og hún berst okkur. Takk kærlega fyrir að kaupa sanna gjöf!

UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, er leiðandi í hjálparstarfi fyrir börn í heiminum. Við berjumst fyrir réttindum barna á heimsvísu og sinnum bæði langtímauppbyggingu og neyðaraðstoð. Við erum á vettvangi í yfir 190 löndum og leggjum áherslu á að ná til allra barna – hvar sem þau eru.

Öll börn eiga rétt – en ekki öll börn fá notið réttar síns. Þessu viljum við breyta. Öll heimsins börn hafa rétt á heilsugæslu, menntun, jafnrétti og vernd. Þau eiga rétt á að vera börn.

Á hverjum degi sjáum við árangur af starfi okkar – árangur sem hefur bein áhrif á líf barna vítt og breitt um heiminn. Það drífur okkur áfram. Starf UNICEF á þátt í að stórlega hefur dregið úr barnadauða á heimsvísu, fleiri börn fara í skóla nú en nokkru sinni fyrr, margfalt fleiri börn fá meðferð við HIV en áður og fleiri hafa aðgang að hreinu vatni nú en nokkru sinni fyrr.

Verkefnið er að ná til allra barna. Það gerum við með ykkar hjálp. Í öllu okkar starfi treystum við eingöngu á frjáls framlög.

Nánari upplýsingar um starfsemi UNICEF er að finna á heimasíðu okkar www.unicef.is.

Það fer eftir þörfinni hverju sinni hvert gjafirnar eru sendar. UNICEF metur þörf fyrir aðstoð eftir ströngum verkferlum. 

Já. UNICEF starfrækir stærsta mannúðarvöruhús veraldar og er leiðandi á heimsvísu í að útvega börnum í neyð nauðsynleg hjálpargögn. Sannar gjafir eru táknrænar gjafir og dæmi um hjálpargögn sem UNICEF er að afhenda núna. Kaup þín á Sönnum gjöfum eru kjarnaframlag til UNICEF og styður verkefni okkar um allan heim í yfir 190 löndum og landsvæðum.

Já, afgreiðslukerfi sannra gjafa er sjálfvirkt og því er hægt að kaupa og fá gjafabréf fyrir sanna gjöf sent samstundis með tölvupósti ef greitt er með kreditkorti. Veljir þú að greiða með millifærslu berst gjafabréfið í tölvupósti næsta virka dag. Hafir þú valið að fá gjafabréfið sent með bréfpósti er það póstlagt næsta virka dag. 

 

Þú velur hvort þú viljir fá gjafabréfið sent með tölvupósti eða í bréfpósti. Veljir þú að fá gjafabréfið með tölvupósti færðu það sent um leið og greiðsla er staðfest. Þú getur þá prentað það út eða sent rafrænt beint á viðtakanda. 

Sé greitt með millifærslu er mikilvægt að okkur berist kvittun í tölvupósti. Um leið og við getum staðfest að greiðsla hafi borist mun gjafabréfið berast með tölvupósti, hafi sá afgreiðslumáti verið valinn.
Athugið að tölvupóstur með gjafabréfi getur í sumum tilvikum lent í ruslpósti eða flokknum „auglýsingar“ hjá notendum Gmail og öðrum þjónustuaðilum. 

Sé bréfpóstur valinn bætist við 300 króna sendingarkostnaður. Þú færð gjafabréfið prentað á þykkan fallegan pappír og í umslagi. Sendingin er sett í póst strax næsta virka dag. 

Við öll tækifæri! Í vöruúrvali okkar má finna heppilega gjöf fyrir hvers kyns tilefni, hvort sem er fyrir jól, afmæli, útskriftir, hjónavígslur, mæðradag, fermingar, bóndadag eða konudag. Síðan þarf að sjálfsögðu ekkert sérstakt tilefni til að gefa sanna gjöf – hún bætir og kætir hvenær sem er. 

Þegar þú kaupir sanna gjöf gleður þú bæði viðtakanda gjafabréfsins og börn sem eiga um sárt að binda. Í gjafaúrvali okkar er að finna nauðsynleg hjálpargögn sem UNICEF dreifir til barna um víða veröld, svo sem bóluefni, skólagögn, næringu og lyf. 

Hjálpargögnin eru af öllum stærðum og gerðum og í öllum verðflokkum. 

Já! Í nóvember 2021 tóku gildi ný lög um skattalega hvata til almannaheillastarfsemi. Lögin fela í sér nýja heimild fyrir einstaklinga til að draga allt að 350 þúsund krónur á ári frá skattskyldum tekjum sínum utan atvinnurekstrar vegna framlaga til almannaheillastarfsemi, eins og UNICEF. Styrkur einstaklings þarf að lágmarki að vera 10.000 kr. á ári til að hann sé frádráttarbær. Auk þess er kveðið á um tvöföldun á hlutfalli sem atvinnurekstraraðilar mega draga frá skattskyldum tekjum vegna slíkra framlaga sem fer úr 0,75% í 1,5%

Scroll to Top